Frístund
Frístundastarfið í Krikaskóla er mikilvægur hlekkur í námi og leik 6 til 9 ára barna í Krikaskóla. Frístund er þrískipt, fyrir kennslu að morgni frá kl. 7:30-9:00. Frístundarstarfi sem er fleytt inn í skóladag barnanna frá kl. 9:00-14:00 á daginn með aðkomu allra kennara skólans. Að lokum er einnig frístundarstarf frá kl. 14:00 og fram að lokun skólans kl. 17:00. Greitt er frístundargjald skv. gjaldskrá Mosfellsbæjar fyrir frístund fyrir kl. 9:00 og eftir kl. 14:00 eftir að eiginlegum skóladegi barnanna lýkur. Foreldrar greiða ekki fyrir frístund sem telst hluti af skóladegi barnanna í Krikaskóla.
Viðfangsefni barna í frístund eru sérstaklega tengd list-og verkgreinum, útivist og hreyfingu, ásamt góðri tengingu við nám og viðfangsefni þeirra í skólanum.
Eva Rut Helgadóttir umsjónarmaður frístundar krika-fristund@mosmennt.is
Ari Páll Olsen
Kristinn Rafn Guðmundsson
Ólafur Pálmarsson
Þórir Hólm Jónsson
Haraldur Sigmundsson myndlistakennari
Á hverju skólaári eru frídagar í skólastarfinu, þegar ekki er kennsla, þá býðst börnum að vera í frístundarvistun tiltekna daga samkvæmt gjaldskrá. Það er alla jafna þá virku daga sem Krikaskóli er opin um jól, páska og í vetrarfríum. Einnig við upphaf og lok skólaársins en þá eru eru frístundarnámskeið í boði fyrir börnin.
Frístundin er með fjölbreytta dagskrá þá, sér í lagi á sumrin þegar farið er í ferðir ýmist fótgangandi, hjólandi eða með stætisvögnum. Börnin hafa tekið þátt í að skipuleggja viðfangsefnin þessa daga með starfsfólkinu.
Frístundin er auglýst sérstaklega með góðum fyrirvara.
Hægt að kaupa morgunmat, ávaxtabita, hádegismat og síðdegisbita fyrir börnin í aukafrístund samkvæmt gjaldskrá.
Sú nýbreytni verður í vetur að boðið verður upp á frístundabíl sem ekur á milli skólasvæða í Mosfellsbæ.
Ekinn er ákveðinn hringur tvisvar sinnum yfir daginn. Mælst er til þess að yngstu börnin gangi fyrir í þessum frístundaakstri.
Einnig er bent á að Strætó er með mjög góða þjónustu í Mosfellsbæ og ganga vagnar að meðaltali á 15 mínútna fresti á milli skólasvæða.