Foreldrasamstarf
Foreldrasamstarf er ein af grunnundirstöðum Krikaskólasamfélagsins. Það er mikilvægt fyrir alla í skólasamfélaginu, bæði börn, foreldra og starfsfólk að rækta góð tengsl og eiga góð samskipti.
Tengsl foreldra og skóla
Börn, foreldrar/forráðamenn og starfsfólk skólans mynda saman skólasamfélagið í Krikaskóla. Mikilvægt er að þessir hópar vinni saman að mótun þessa samfélags og þeirra umgengnishátta sem eiga að einkenna samskipti innan skólans og utan. Menntun og velferð barnanna er sameiginlegt verkefni heimila og skóla og samstarfið þarf að byggjast á gagnkvæmri virðingu, gagnkvæmu trausti, samábyrgð og gagnkvæmri upplýsingamiðlun (Aðalnámskrá grunnskóla).
Foreldrar eru ávallt velkomnir í skólann þar sem þeir geta fylgst með börnum sínum í leik og starfi. Hvetjum við foreldra til að hafa samband við skólann vilji þeir afla sér upplýsinga eða koma upplýsingum á framfæri. Allir kennarar hafa fastan viðtalsíma en utan þess tíma svarar starfsfólk í síma eftir því sem tök eru á. Tölvupóstur er einnig þægilegt samskiptaform og má finna netföng starfsfólks á vef skólans.
- tölvupóstasamskipti við foreldra fara í gegnum Námfús
- vefur skólans er ætlaður til upplýsingamiðlunar
- fréttabréf senda kennarar með tölvupósti til foreldra
Foreldrar eru hvattir til að koma með virkum hætti að skólastarfinu, hvort heldur er í daglegum samskiptum þegar þau fylgja börnum sínum í skólann og sækja þau, eða í formlegri samvinnu í skólastarfinu.
Foreldrafélag og skólaráð eru fletir fyrir formlega samvinnu með þátttöku foreldra.
Markmiðið með foreldrasamstarfi
- að veita foreldrum upplýsingar um skólastarfið
- að veita foreldrum upplýsingar um þroska barnsins og stöðu þess í skólanum
- afla upplýsinga um aðstæður og uppeldisviðhorf foreldra
- stuðla að þátttöku foreldra í starfi skólans
- skapa umræðuvettvang fyrir skoðanaskipti um uppeldi barna (Heimild; aðalnámskrá leikskóla)
- rækta samvinnu og samskipti skóla og heimilanna
Mikilvægt er að foreldrar og starfsfólk skólans vinni saman að því að skapa farsæla umgjörð um það starf sem fram fer í skólanum. Hlýja, gagnkvæmt traust og gagnkvæm og virk upplýsingagjöf þarf að vera til staðar í samskiptum foreldra og skóla til að tryggja sem best hagsmuni barnanna.
Foreldrar þekkja börnin sín best og er þekking þeirra á þroska og líðan barnanna lögð til grundvallar í öllu starfi með börnunum og foreldrum. Mestu máli skiptir, í námi og starfi barnanna, er að þeim líði vel í skólanum og að þau hafi tækifæri til að fást við viðfangsefni sem eflir þau og veitir þeim gleði.
Samskipti
Vikuáætlanir
Kennarar senda vikuáætlanir í tölvupósti þar sem kynnt eru, í stórum dráttum, þau viðfangsefni sem unnið er að. Námshópar hafa sinn stað á heimasíðu þar sem starfsfólk mun koma fyrir ýmsum upplýsingum er varða daglegt starf.
Náms- og kynningarfundur
Að hausti er haldinn náms- og kynningarfundur með foreldrum hvers árgangs. Kennarar kynna áætlanir sem liggja frammi um starfsemi skólans. Þeir kynna foreldrum bekkjarnámskrá, námsmatsáætlun og annað skipulag á skólastarfi. Foreldrum gefst færi á að ræða og koma með tillögur er varðar starfið. Á þessum fundi kjósa foreldrar fulltrúa til setu í foreldrafélaginu.
Foreldraviðtöl
Tvisvar á ári eru foreldrar boðaðir í viðtal við kennara barnsins. Kennarar veita upplýsingar um hagi og stöðu barnsins í skólanum auk ýmissa hagnýtra upplýsinga. Mikilvægt er að foreldrar og forráðamenn upplýsi skólann sem best um barnið og greini frá þeim þáttum sem geta haft áhrif á líðan þess í daglegu starfi. Um persónuupplýsingar ríkir þagnaskylda.
Hvatt er til þess að foreldrar komi með virkum hætti að skólastarfinu með markvissum heimsóknum, þátttöku í starfi með börnunum, foreldrafélags og foreldraráðs.
Foreldrakannanir
- 2017-2018 - Foreldrakönnun grunnskóla (pdf)
- 2017-20189 - Foreldrakönnun leikskóla (pdf)
- 2015 - Foreldrakönnun (pdf)
- 2014 - Viðhorfskönnun foreldra (pdf)
- 2013 - Foreldrakönnun Krikaskóla (pdf)
- 2010 - Viðhorf foreldra leikskólabarna (pdf)