logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Fréttasafn

Krikaskóli lokar kl.14, föstudaginn 13. september

06.09.2013 08:41

Logo KrikaskólaNæsta föstudag þann 13.september verður starfsmannafundur kl.14 í Krikaskóla. Börnin þurfa að vera sótt fyrir þann tíma.

Meira ...

Frístundaakstur

04.09.2013 09:56

TeiknimyndarútaFrístundaakstur á milli Krikaskóla og Lágafellsskóla er hafinn. Aksturinn er vegna samstarfs frístundar og Aftureldingar. Börn sem sækja íþróttaæfingar eftir skóla geta nýtt sér þessar ferðir. Bíllinn stoppar við íþróttahús Varmárskóla á leið sinni í Lágafellsskóla. Aksturstímana má sjá hér.

Meira ...

Bæjarhátíðin Í túninu heima

27.08.2013 13:26

Í túninu heima - bleik börnBæjarhátíð Mosfellsbæjar, Í túninu heima, er um næstu helgi. Í tilefni litaþema hverfanna væri gaman ef börnin kæmu í fötum í þeim litum sem þeirra gata tilheyrir eða einhverjum af þessum fjórum litum, þ.e. gulur, rauður, blár eða bleikur. Krikaskóli tilheyrir bleika hverfinu og verður skreyttur í þeim lit.

Meira ...

Kynningarfundur fyrir foreldra

19.08.2013 12:47

Logo KrikaskólaMiðvikudaginn 21.ágúst kl.20 verður kynningarfundur fyrir foreldra barna í Krikaskóla. Fundurinn hefst í matsalnum kl 20:00. Þá verður stutt kynning á hugmyndafræði skólans og öðrum þáttum sem varða skólastarfið í heild. Eftir það bjóða deildastjórar og umsjónarkennarar foreldrum til kynningar á hverju hreiðri fyrir sig þar sem þeir kynna starf vetrarins.

Meira ...

Krikaskóli lokaður föstudaginn 16.ágúst

12.08.2013 15:31

Krikaskóli merkiFöstudaginn 16.ágúst er fræðslu og skipulagsdagur í Krikaskóla. Þann dag koma börnin ekki í skólann né í frístund. Starfsfólkið fær námskeið og skipuleggur starfið framundan.

Meira ...

Staða íþróttakennara laus til umsóknar

18.07.2013 10:44

Óskað er eftir íþróttakennara til starfa í Krikaskóla.  Viðkomandi þarf einnig að sjá um sundkennslu. 
Íþróttakennari Krikaskóla tekur þátt í starfi með fjölbreyttum aldri barna og kemur einnig að öðrum störfum með börnum. 

Meira ...

Gleðilegt sumar

05.07.2013 16:12

Logo KrikaskólaFöstudaginn 5. júlí lokar Krikaskóli vegna sumarleyfa. Mánudaginn 8. júlí opnar sumarleikskólinn að Hlaðhömrum fyrir þau börn sem þar eru skráð. Þriðjudaginn 6.ágúst opnar aftur í Sunnukrikanum. Í ágústmánuði stækkar hópur tveggja ára barna í skólanum sem byrjar í aðlögun á tímabilinu frá 8. ágúst til 31. ágúst.
Skólasetning verður mánudaginn 12. ágúst. Þann dag hefst bæði skóli og frístund. Opið er fyrir umsóknir í frístund á íbúagáttinni, eldri umsóknir hafa fallið úr gildi og því þarf að sækja um fyrir öll börn sem verða í frístundinni næsta vetur.



Meira ...

Gæsluleikvöllur Mosfellsbæjar

04.07.2013 14:24

LOGO MOSGæsluleikvöllur Mosfellsbæjar verður opinn  frá 1. júlí til og með 1. ágúst.
Opnunartími vallarins er frá 9.00 - 12.00 og frá 13.00 - 16.00.
Á gæsluvöllinn geta komið börn frá 20 mánaða - 6 ára aldurs. Gjaldið er kr. 160 fyrir klst. og þurfa börnin að koma með nesti með sér. Hægt er að kaupa 20 miða/klst. kort á kr. 3.000. Gæsluvöllurinn er staðsettur við Kjarna og er aðkoma að vellinum frá neðra plani.

Meira ...

Lausar stöður í Krikaskóla

24.05.2013 14:50

Krikaskóli merkiKrikaskóli er leik- og grunnskóli fyrir börn á aldrinum 1-9 ára og starfsemin tekur mið af skólastefnu Mosfellsbæjar um heildstætt uppeldis- og skólastarf í leik- og grunnskólum.  Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér skólastefnu skólans á heimasíðu hans áður en þeir sækja um starf. Skilyrði fyrir ráðningu í Krikaskóla er að viðkomandi hafi ánægju af börnum í öllum sínum fjölbreytileika, hafi ríka samskiptahæfni í hröðu og lifandi umhverfi skólastarfsins og eigi auðvelt með að taka ábyrgð á sjálfum sér. Lausar stöður má sjá undir Lesa meira.

Meira ...

Stefnumót við framtíðina í skólamálum Mosfellsbæjar

22.05.2013 10:27

Stefnumót við framtíðinaEins og kunnugt er stendur Mosfellsbær á tímamótum varðandi nýjar skólabyggingar fyrir leik- og grunnskóla.

Af því tilefni býður Skólaskrifstofa Mosfellsbæjar íbúum bæjarins og þeim sem nær standa skólasamfélaginu til samráðs um skóla og skólabyggingar í nútíð og framtíð.

Haldinn verður fundur í Varmárskóla eldri deild, laugardaginn 25. maí, kl. 10 – 12.
Boðið verður upp á morgunkaffi kl. 9:30.

Meira ...

Síða 20 af 34

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira