Fréttasafn
2024
apríl, maí, júní, ágúst, september.
2023
mars, maí, júní, september, desember.
2022
janúar, febrúar, mars, apríl, september, október.
2021
janúar, mars, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2020
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2019
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, desember.
2018
janúar, febrúar, mars, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2017
janúar, febrúar, mars, apríl, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2016
janúar, febrúar, mars, apríl, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2015
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2014
apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2013
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júlí, ágúst, september.
2012
janúar, febrúar, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2011
febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, nóvember, desember.
2010
Fréttasafn
Kynningarfundur fyrir foreldra
01.10.2012 08:36Fimmtudaginn 4.október kl.18 verður kynningarfundur fyrir foreldra barna í Krikaskóla. Fundurinn hefst í matsalnum kl 18.00. Þá verður stutt kynning á hugmyndafræði skólans og öðrum þáttum sem varða skólastarfið í heild. Eftir það bjóða deildastjórar og umsjónarkennarar foreldrum til kynningar á hverju hreiðri fyrir sig þar sem þeir kynna starf vetrarins. Til að sjá dagskránna þarf að ýta á lesa meira.
Frístundaakstur frá Krikaskóla
21.09.2012 13:43Frístundaakstur á milli Krikaskóla og Lágafellsskóla hefst næstkomandi mánudag, 24.september. Aksturinn er vegna samstarfs frístundar og Aftureldingar. Börn sem sækja íþróttaæfingar eftir skóla geta nýtt sér þessar ferðir. Bíllinn stoppar við íþróttahús Varmárskóla á leið sinni í Lágafellsskóla. Aksturstímana má sjá hér.
Evrópsk samgönguvika í Mosfellsbæ
18.09.2012 09:07Dagana 16. – 22. september mun Mosfellsbær taka þátt í Evrópsku Samgönguvikunni, European Mobility Week, en yfirskriftin í ár er „á réttri leið“. Tilgangur samgönguvikunnar er að vekja athygli á vistvænum samgöngum og hvetja almenning til að nýta sér almenningssamgöngur, hjólreiðar og aðra vistvæna fararkosti.
Leshringur átt og níu ára nemenda
12.09.2012 14:53Í vetur er börnum í 3.- 4. árgangi boðið að taka þátt í leshring. Um er að ræða 50 mínútur í stað útivistar á föstudögum. Börnin skrá sig í hópinn og eru skuldbundin til að mæta en geta að sjálfsögðu skráð sig úr hópnum. Tíminn er vinsæll bæði meðal stúlkna og drengja og allir leggja sig fram við lesturinn. Í framhaldi stendur til að bjóða börnum í 1.- 2. árgangi sem treysta sér í nokkuð krefjandi lestur.
Starfsmannafundur 14.september
11.09.2012 11:49Næsta föstudag þann 14.september verður starfsmannafundur kl.14 í Krikaskóla. Börnin þurfa að vera sótt fyrir þann tíma.
Myndataka í Krikaskóla
10.09.2012 09:01Fimmtudaginn 13. september mun Ólína ljósmyndari frá myndo.is koma í Krikaskóla og taka myndir af börnunum. Hún mun taka hópmyndir og einstaklingsmyndir. Ef veður leyfir mun hópamyndtakan vera tekin utandyra en einstaklingsmyndir innandyra og stefnt er að því að myndatökur hefjast uppúr kl. 9.
Vettvangsferð í Árbæjarsafn
24.08.2012 11:36Átta og níu ára börn byrjuðu í þemanáminu sínu í vikunni. Fyrsta þemaverkefnið nefnist „Í þá gömlu góðu daga“. Af því tilefni fórum börnin með kennurum sínum á Árbæjarsafn í gær. Starfsmaður á safninu tók á móti börnunum og gekk með þeim um safnið. Hann fræddi þau um stóra brunann í Reykjavík 1915. Einnig fræddi hann þau um gamlar byggingar og muni. Börnin skemmtu sér vel og voru mjög áhugsöm að kynna sér hvernig lífið gekk fyrir sig í "gamla daga".
Í þá gömlu góðu daga
24.08.2012 11:168 og 9 ára byrjuðu á þemanáminu sínu í vikunni og það heitir „Í þá gömlu góðu daga“. Í tilefni af því fórum við á Árbæjarsafn í gær og gekk ferðin vonum framar. Kalli tók á móti okkur og fræddi um alla króka og kima safnsins. Við fengum að kynnast brunanum stóra í Reykjavík um 1915, allar gömlu byggingarnar og gamla muni sem börnin voru mjög áhugasöm um. Við munum vinna mikið út frá ferðinni og vonandi gefast kostur á að fara aftur síðar.
Nýtt skólaár í Krikaskóla hafið
21.08.2012 12:48Skólasetning Krikaskóla fór fram föstudaginn 17. ágúst 2012. Börnin komu ásamt foreldrum sínum til að hefja nýtt skólaár. Gleði, spenna og smá kvíði fylgir með en yfirhöndina á yfirleitt ánægjan yfir að hitta aftur góða vini og félaga. Umsjónarkennarar eru Svava Björk, Sigríður Ásdís og Andrea Anna með 6 og 7 ára börnin og Margrét Lára og Sigríður Helga með 8 og 9 ára börnin.
Ökumenn hvattir til að sýna aðgát
19.08.2012 09:06Nú eru grunnskólar bæjarins að hefja störf að nýju og fjöldi skólabarna er nú að hefja skólagöngu í fyrsta sinn og því að feta sín fyrstu sín fyrstu skref í umferðinni ein síns liðs. Mosfellsbær beinir þeim tilmælum til ökumanna að fara að öllu með gát og gæta sérstaklega að litlum einstaklingum sem eru að læra á umferðina. Einnig eru sem flestir hvattir til þess að fara fótgangandi í skóla
Síða 25 af 34