Tryggingar barna
Leik- og grunnskólabörn í Mosfellsbæ eru tryggð hjá Sjóvá.
Um slysatryggingu skólabarna.
Öll börn, sem eru búsett í Mosfellsbæ og eru skráð í grunnskóla (gildir um slys sem verða á skólatíma og í frístundaseljum, á skólalóð eða í ferð á vegum skólans),
leikskóla, á sumarnámskeiðum ÍTOM og í skipulögðu tómstundastarfi félagsmiðstöðva eru sjálfkrafa vátryggð hjá Sjóvá.
Sjálfsábyrgð í hverju tjóni er kr. 17.000 vegna slyss á barni (nemanda)
Ferli varðandi slysatryggingu á skólatíma er svona:
1. Foreldrar greiða sjálfir heimsóknir á heilsugæslu eða til sérfræðinga vegna slyssins (ekki skólinn eða Mosfellsbær)
2. Þegar upphæðin sem foreldrar hafa þurft að greiða vegna slyssins fer yfir 17.000 krónurnar fara foreldrar með nóturnar á skrifstofu Sjóvá hf. og fá endurgreitt.
Best er að leita til Sjóvá ef þið þurfið frekari upplýsingar.
Kringlan 5, 103 Reykjavík
sjova@sjova.is sími: 440-2000
Fræðslu- og frístundasvið Mosfellsbæjar
Þverholti 2
270 Mosfellsbær
sími: 525 6700