Fréttasafn
2024
apríl, maí, júní, ágúst, september, október.
2023
mars, maí, júní, september, desember.
2022
janúar, febrúar, mars, apríl, september, október.
2021
janúar, mars, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2020
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2019
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, desember.
2018
janúar, febrúar, mars, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2017
janúar, febrúar, mars, apríl, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2016
janúar, febrúar, mars, apríl, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2015
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2014
apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2013
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júlí, ágúst, september.
2012
janúar, febrúar, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2011
febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, nóvember, desember.
2010
Gjaldfrjáls grunnskóli
15/08/2017Námsögn verða afhent nemendum í upphafi skólaárs. Til að hlúa að umhverfinu okkar og fara vel með sameiginlega sjóði sveitarfélagsins þá biðjum við ykkur um að leggja okkur lið og athuga hvaða námsgögn eru til á heimilinu frá fyrri árum. Börnin eru beðin um að koma með í skólann þau gögn sem hægt er nýta áfram (s.s möppur, pappír, stílabækur/reiknisbækur, plastvasa og fleira). Það sem upp á vantar af námsgögnum mun skólinn bæta við. Ritföng sem þegar eru til er ágætt að eiga heimavið.
Eftirfarandi vinnureglur gilda um gjaldfrjáls námsgögn í grunnskólum Mosfellsbæjar:
• Gagnalistar eru til staðar á heimasíðum skólanna - þar er hægt að sjá hvað hver bekkur/árgangur þarf af nauðsynlegum námsgögnum - Velji foreldrar önnur innkaup á gögnum en tilgreind eru í gagnalistum fellur sá kostnaður ekki innan námsgagna sem skólinn afhendir.
• Endurnýjun á námsgögnum og ritföngum fer fram að meðaltali á þriggja ára fresti. Undantekning er þó skriffæri (blýantar, skriftarpennar), strokleður og límstifti sem endurnýjast árlega.
• Þeir nemendur sem eru að hefja nám í 1. bekk fá ný námsgögn þar sem þeir eru að hefja sína skólagöngu.
• Námgögn eins og stíla- og reiknisbækur, sögu- og verkefnabækur og möppur eru að öllu jöfnu geymd í skólanum en fara heim með nemendum ef um heimanám er að ræða. Gert er ráð fyrir að á heimilum séu til nauðsynleg skriffæri og litir.
• Námsgögn verða ýmist sérmerkt nemanda eða verða í bekkjar, árganga,- stofu- og eða skólasettum.
• Eftir því sem líður á námið í grunnskóla bætast við námsgögn og munu þau verða afhent eftir þörfum.
• Kostnaður vegna valáfanga er óbreyttur.
• Innan gjaldfrjálsra námsgagna eru ekki skólatöskur, pennaveski, íþrótta- og sundföt og flóknari reiknivélar (nýtast áfram í framhaldsskóla).
• Týnist eða eyðileggist námsgögn/ritföng/ (skólagögn?) vegna slæmrar meðferðar hjá nemendum eru foreldrar ábyrgir fyrir því að námsgögn séu endurnýjuð.
Nýtt fyrirkomulag á gjaldfrjálsum grunnskóla mun taka tíma að móta. Við óskum eftir sem bestri samvinnu í anda umhverfisverndar við endurnýtingu og meðferð námsgagna.
Með góðri kveðju
Linda Udengård framkvæmdastjóri fræðslu- og frístundasviðs
Þrúður Hjelm skólastjóri Krikaskóla