Fréttasafn
2024
apríl, maí, júní, ágúst, september, október.
2023
mars, maí, júní, september, desember.
2022
janúar, febrúar, mars, apríl, september, október.
2021
janúar, mars, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2020
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2019
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, desember.
2018
janúar, febrúar, mars, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2017
janúar, febrúar, mars, apríl, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2016
janúar, febrúar, mars, apríl, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2015
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2014
apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2013
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júlí, ágúst, september.
2012
janúar, febrúar, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2011
febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, nóvember, desember.
2010
ÚTTEKT Á ÖLLU SKÓLAHÚSNÆÐI BÆJARINS
22/03/2019
Ákveðið að gera úttekt á öllu skólahúsnæði bæjarins
Á fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar þann 20. mars var tillaga fulltrúa D- og V- lista um úttekt á rakaskemmdum í öllu skólahúsnæði Mosfellsbæjar samþykkt einróma.
Tillagan var eftirfarandi:
„Fulltrúar D- og V- lista leggja til að umhverfissviði verði falið að láta framkvæma skoðun á öllu skólahúsnæði Mosfellsbæjar m.t.t. rakaskemmda og hugsanlegs örveruvaxtar tengdum þeim. Ef fram koma merki um örveruvöxt í þeirri skoðun verði strax gerð áætlun um úrbætur og ráðist í þær.
Þrátt fyrir þær þrjár úttektir sem Efla hefur gert á húsnæði Varmárskóla og úrbætur í kjölfar þeirra eru enn uppi efasemdir í skólasamfélaginu í Mosfellsbæ um að nóg sé að gert.
Því
er mikilvægt að fyrsta verkefni tengt þessari skoðun verði að ráðast í
heildstæða úttekt á Varmárskóla og mæla loftgæði þannig að ekki leiki vafi á að
húsnæði skólans mæti kröfum sem gerðar eru til skólahúsnæðis.“
Á bæjarstjórnarfundinum kom fram breytingartillaga um að bæjarstjórn stæði
sameiginlega að tillögunni og var tillagan ásamt breytingartillögunni samþykkt
með 9 atkvæðum allra bæjarfulltrúa.
Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar:
„Að undanförnu hafa verið miklar umræður um raka og mögulegan örveruvöxt í skólahúsnæði á Íslandi. Í hverjum skólanum á fætur öðrum hafa verið fréttir af rakavandmálum og í einhverjum tilvikum hefur örveruvöxtur náð sér á strik.
Við hjá Mosfellsbæ höfum alltaf tekið hlutverk okkar á sviði skólamála alvarlega og viljum vera eins viss og frekast er unnt um að okkar húsnæði sé í góðu lagi. Á þessu stigi höfum við engan sérstak grun um vandamál á þessu sviði en viljum leita af okkur allan grun.
Í vinnu okkar við viðhald og rekstur Varmárskóla hafa greinst þrír afmarkaðir staðir þar sem örveruvaxtar hefur orðið vart og hefur verið brugðist við þeim vanda. Næsta skref í því húsnæði er því að ráðast í heildstæða úttekt á Varmárskóla og mæla loftgæði þar enda má engin vafi ríkja um heilnæmi skólahúsnæðis í Mosfellsbæ. Við munum leggja okkur fram við að halda öllum upplýstum um framgang mála.
Ég fagna því sérstaklega að um næstu aðgerðir í þessum málum ríki góð sátt að meðal allra bæjarfulltrúa.“
Nánari
upplýsingar veitir:
Arnar Jónsson, forstöðumaður þjónustu- og samskiptadeildar í síma 840-1244
eða í gegnum netfangið arnar@mos.is