logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Haustkynning Krikaskóla

03/09/2024
Við minnum á haustkynningu Krikaskóla, fyrir foreldra, fimmtudaginn 5. september kl. 17:00. Við komum saman í sal skólans þar sem haldin verður stutt kynning á skólanum.
 
Elín skólahjúkrunarfræðingur kemur og segir okkur frá sinni aðkomu að börnunum í Krikaskóla.
Síðan bjóða deildarstjórar og umsjónarkennarar foreldrum upp í hreiður og kynna starf hvers aldurshóps.
 
Við hvetjum foreldra til að nýta tækifærið og taka þátt með okkur.
 
Hlökkum til að sjá ykkur.
Starfsfólk Krikaskóla
Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira